Alonso bíður Kubica

Alonso hefur trú á Kubica. stækka

Alonso hefur trú á Kubica.

Fernando Alonso kveðst „öruggur“ um að Robert Kubica eigi eftir að snúa aftur til keppni í formúlu-1 og staðfesta, að hann „sé besti ökuþórinn“.

Kubica hefur verið fjarverandi formúluna í um eitt ár í kjölfar alvarlegs slyss í ralli í febrúar í  fyrra. Bataferli hans og hugsanleg endurkoma beið hnekki í síðustu viku er hann hrasaði og féll í hálku skammt frá heimili sínu með þeim afleiðingum að fótbrot í rallslysinu opnaðist aftur.

Þótt engar fregnir hafi farið af því hvaða afleiðingar nýja óhappið kunni að hafa velkist  Alonso ekki í vafa. Hann hefur fulla trú á því að hinn góði vinur hans snúi aftur.

„Robert er besti ökumaðurinn sem völ er á og það mun hann staðfesta þegar hann mætir aftur til keppni.“ Og hvað orðróm um að hann gæti verið á leið til Ferrari í stað Felipe Massa á næsta ári segir Alonso: „Að fá hann sem liðsfélaga? Ég er mjög ánægður með Felipe sem liðsfélaga“.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is