Lotus með gagnvirka fjöðrun

Renault, nú Lotus, í lokamótinu í Abu Dhabi. stækka

Renault, nú Lotus, í lokamótinu í Abu Dhabi. reuters

Lotusliðið, áður Renault, hefur þróað nýstárlega fjöðrun í formúlubíl sinn sem líklegt þykir að önnur lið muni herma eftir þar sem Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur lagt blessun sína yfir hana.

Um er að ræða svonefnda gagnvirka fjöðrun sem stuðlar að því að vegfirð er ætíð jöfn þegar bílnum er bremsað á leið inn í beygjur. Fjöðrunarbúnaðurinn er rafrænt tengdur bremsukerfinu og bregst við breytingum á svonefndu bremsumætti; bremsutorki.

Fjöðrunarkerfi þetta var fyrst borið undir FIA árið 2010 er Renault vann að þróun þess. Bann er lagt við því að ökumaður hafi áhrif á vegfirð með beinni íhlutun, til dæmis með því að virkja fjöðrunina með aðgerð í  stjórnklefanum. Hann á hins vegar engan hlut að máli í hinu gagnvirka fjöðrunarkerfi Lotusbílsins.

Með þessum fjöðrunarbúnaði verður loftafl bílsins skilvirkara þar sem trjóna bílsins verður ætíð jafnhátt frá jörðu en drúpir ekki við bremsun. Renault mun hafa prófað lokagerð þessarar fjöðrunar á æfingum fyrir unga ökumenn í Abu Dhabi kjölfar lokamóts ársins þar á nýliðinni formúlutíð.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar


finnur.is