Öðru sinni Senna hjá Williams

Bruno Senna. stækka

Bruno Senna. reuters

Williamsliðið staðfesti í dag það sem þótt hefur liggja í loftinu; Bruno Senna hefur verið ráðinn til að keppa fyrir það á komandi formúlutíð. Móðurbróðir hans, Ayrton Senna, keppti á sínum tíma fyrir sama lið.

Senna leysti Nick Heidfeld af hjá Renault í fyrra en hlaut ekki náð lengur þar sem liðið skipti alveg um ökuþórapar og réði þá Kimi Räikkönen og Sebastien Grosjean.

Hann kemur í stað landa síns Rubens Barrichello og virðist 19 ára formúluferill hans því á enda, nema hann ráði sig til Hispanialiðsins,  en þar er enn laust sæti.

„Það verður áhugavert að aka fyrir liðið sem móðurbróðir minn keppti fyrir því margir þeirra sem hér starfa enn unnu með Ayrton,“ sagði Senna í tilefni ráðningarinnar.

Senna keppti fyrir Renault seinni helming vertíðarinnar 2011.

Senna keppti fyrir Renault seinni helming vertíðarinnar 2011. reuters

Ayrton Senna var á Williamsbíl er hann beið bana í San Marínó-kappakstrinum í Imola vorið 1994. 

Barrichello var fljótur að óska landa sínum og vini til hamingju með ráðninguna. „Ég ek ekki Williamsbíl í ár, ég óska félaga mínum Bruno Senna góðs gengis, framtíðin er enn opin . . “ sagði hann í Twitter-færslu.

Liðsstjórinn Frank Williams sagði að liðið hefði skoðað Senna mjög í bílhermi undanfarnar vikur þar sem takmarkað hefði verið hægt að byggja á stuttri keppni hans bæði í fyrra og hitteðfyrra. „Útkoman er sú, að hann er sannarlega hraðskreiður, með gott tæknilegt innsæi og fljótur að tileinka sér það sem hann lærir,“ sagði Williams.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar


finnur.is