Hill aðstoðar við útsendingar Sky

Damon Hill færði Williams tvo titla 1996, ökuþóra og bílsmiða. Renaultvél var í bílnum. stækka

Damon Hill færði Williams tvo titla 1996, ökuþóra og bílsmiða. Renaultvél var í bílnum.

Sjónvarpsstöðvar leggja mikið upp úr því að fá aðstoð fyrrverandi keppnisökuþóra við útsendingar sínar frá formúlu-1. Hefur breska stöðin Sky krækt í einn góðan en hún tekur við útsendingum í Bretlandi af BBC.

Þar er um að ræða Damon Hill, heimsmeistara frá árinu 1996 með Williamsliðinu. Hann mun taka þátt í útsendingum frá 10 mótum af 20 sem álitsgjafi og mun við það njóta reynslu sinnar en hann keppti á sínum tíma í 122 mótum.

Hill verður þar á meðal annarra fyrrverandi breskra keppnismanna úr formúlu-1, þeim  Martin Brundle og Anthony Davidson. Tekur hann þátt í útsendingum frá mótunum í Melbourne, Barein, Mónakó, Silverstone, Hockenheim, Búdapest, Belgíu, Indlandi, Bandaríkjunum og Sao Paulo í Brasilíu.

Hill tekur aðeins þátt í útsendingum frá helmingi mótanna til að geta sinnt og fylgst betur með framgangi sonar síns Josh, sem fetar í fótspor feðranna með keppni í Renaultformúlunni bresku aftur í ár með Forteliðinu.

Damon Hill er gítaristi góður.

Damon Hill er gítaristi góður.

Afi Josh og faðir Damons, Graham Hill, var á sínum tíma meðal bestu ökuþóra heims.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is