McLaren fyrst til að frumsýna

Button verður fyrstur til að frumaka nýjum bíl í ár. stækka

Button verður fyrstur til að frumaka nýjum bíl í ár.

McLaren verður fyrsta liðið til að frumsýna keppnisbíl komandi vertíðar í formúlunni. Fer frumakstur hans fram 1.febrúar en tveimur dögum seinna kemur röðin að Ferrari.

Liðin hafa öll ákveðið hvenær þeir kynna nýju bílana en athygli vekur að athöfn McLaren fer fram í bílsmiðju liðsins í Woking, suður af London. Ferrari frumsýnir einnig á heimavelli, í einkabraut sinni í Maranello á Ítalíu. Liðsstjórinn Stefano Domenicali hefur lýst honum sem „frekar ljótum“ vegna búlgu á nefinu. 

Hin liðin 10 efna til frumsýninga á Spáni; öll nema Mercedes í Jerezbrautinni. Dregur Mercedes lestina og sýnir ekki sinn bíl fyrr en rúmum hálfum mánuði á eftir öllum öðrum, eða í Barcelona í febrúarlok.

Red Bull mun sýna á vefsetri sínu frá frumsýningu 2012-bílsins og frumakstri.

Frumsýningardagskráin er annars sem hér segir:

Dags. Lið Staður
1. feb McLaren Woking
3. feb Ferrari Maranello
5. feb Red Bull Jerez
6. feb Lotus Jerez
6. feb Force India Jerez
6. feb Sauber Jerez
6. feb Toro Rosso Jerez
6. feb Williams Jerez
7. feb Caterham Jerez
7. feb Hispania Jerez
7. feb Marussia Jerez
21. feb Mercedes Barcelone
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar


finnur.is