Sæti til sölu fyrir tæpan milljarð

Liuzzi á ferð á Hispaniabíl. stækka

Liuzzi á ferð á Hispaniabíl.

Enn er einu sæti ökumanns hjá formúluliði óráðstafað. Margir vilja í það komast en sá heppni verður að kaupa það á sex milljónir evra - jafnvirði um milljarðs króna.

Hér er um að ræða annað sætið hjá spænska botnliðinu Hispania. Reyndar hefur Vitantonio Liuzzi samning um að keppa fyrir liðið en hann getur ekki fært því svo mikið fjármagn frá styrktarfyrirtækjum. Og þótt ekki sé kveðið á um það í samningnum segir hann ökumannasamninga ekki meira virði en pappírinn sem þeir séu skrifaðir á því liðin hegði sér eins og þeim sýnist gagnvart ökumönnum þótt samningsbundnir séu.

Margir hafa verið nefndir í tengslum við sæti þetta hjá Hispania, þar á meðal Liuzzi, Rubens Barrichello og Adrian Sutil. Spænska íþróttablaðið Marca segir listann langan en  að fremstur í röðinni standi hollenski ökuþórinn Giedo van der Garde.

Garde hefur keppt í GP2-formúlunni og mun hafa evrumilljónirnar til reiðu. „Ég bíð enn eftir góðum fréttum, bíð framtíðarinnar með jákvæðum hug, æfi mig stíft til að vera sem best undirbúinn,“ hefur hollenska blaðið De Telegraf eftir van der Garde af þessu tilefni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is