Rosberg of lengi hjá Williams
Nico Rosberg segir að fjögurra ára vist hjá Williamsliðinu hafi ekki verið „það ákjósanlegasta“ fyrir feril hans.
Tvítugur að aldri hóf Rosberg feril sinn í formúlu-1 með Williams árið 2006 en eftir fjögurra ára vist hélt hann á vit Mercedes. Hefur hann senn sína þriðju vertíð með liðinu með Michael Schumacher sem liðsfélaga.
Rosberg bíður þess enn að vinna sinn fyrsta mótssigur í formúlunni en hann á að baki rúmlega 100 mót og er sjaldgæft að menn keppi svo lengi án þess að vinna mót. Til samanburðar má nefna að landi hans Sebastian Vettel hefur keppt 20 mótum færra en unnið heimsmeistaratitil ökumanna tvisvar og staðið 21 sinni á efsta þrepi verðlaunapalls auk þess að hafa unnið 20 ráspóla.
Ergir sú staðreynd Rosberg? „Ég iðrast einskis,“ segir hann við tímaritið Auto Motor und Sport. „Ég er sannfærður um að það var rétt að fara til Mercedes og vera þar um kyrrt.“
Hann er minntur á að faðir hans Keke vann 5 mót og titil ökuþóra á sínum keppnisferli sem spannaði 114 mót.
Og bætir svo við: „Tvímælalaust var það ekki ákjósanlegt að vera fjögur ár hjá Williams - gæti hafa verið mun skemur þar.“








