FIA bannar gagnvirka fjöðrun

Lotus mun ekki njóta hinnar nýstárlegu fjöðrunar. stækka

Lotus mun ekki njóta hinnar nýstárlegu fjöðrunar. reuters

Formúluliðunum hefur verið tilkynnt, að gagnvirk fjöðrun sem Renaultliðið hafði þróað fyrir árið í ár sé óheimil til brúks í keppni. Hefur Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) bannað slíkan búnað.

FIA tilkynnti liðunum fyrir helgi, að það teldi búnaðinn stangast á við tæknireglur formúlu-1 en hann stýrir jarðfirrð bílsins á bremsusvæðum til að bæta skilvirkni loftafls og auka stöðugleika bílsins.

Áður, snemma árs í fyrra, hafði FIA gefið Renaultliðinu - sem bera mun nafnið Lotus í ár - grænt ljós á að þróa og brúka fjöðrun af þessu tagi. Hefur sambandið ekki útskýrt viðsnúning sinn í málinu.

Þó vitað sé að Ferrari hafi verið langt komið með að þróa eigin fjöðrun af þessu tagi telja fróðir, að líklegast hafi önnur lið lagt sig fram um að sýna og sanna fyrir FIA að búnaður Lotus hafi verið í bága við reglur.

Christian Horner, liðsstjóri Red Bull, sagðist í síðustu viku óviss um ágæti fjöðrunar af þessu tagi. Ágæti keppnisbíls snerist ekki um einstaka íhluti eða kerfi, heldur að heildin öll smylli vel saman.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar


finnur.is