Hill: Schumacher „einstaklega getumikill“

Hill hafði yfirhöndina gegn Villeneuve er þeir voru liðsfélagar hjá Williams 1996.

Hill hafði yfirhöndina gegn Villeneuve er þeir voru liðsfélagar hjá Williams 1996.

Heimsmeistari formúlunnar frá 1996, Damon Hill, segir að hans forni fjandi, Michael Schumacher sé afburða ökumaður en þurfi á öllu sinu að halda til að keppa öllu lengur í formúlu-1.

Frá því Schumacher kom aftur til keppni 2010 eftir þriggja ára hlé hefur uppskera hans verið lítil og besti árangurinn í keppni fjórða sæti fjórum sinnum. Samningur hans rennur út í árslok og Hill telur hann þurfa gera talsvert betur til að hljóta framlengingu þar á.

„Það er ótrúlegt að hann skuli endast svona, en það eru 12 ár síðan ég hætti,“ segir Hill um sinn gamla keppinaut en þeir háðu harða hildi á árunum 1994-96. „Hann er einstaklega getumikill sem augljóslega elskar að keyra og vill ekki hætta. Það get ég skilið. En formúla-1 getur ekki fleytt ökumönnum áfram skili þeir ekki sínu,“ bætir Hill við, en hann verður einn af formúluskýrendum breska sjónvarpsins Sky á mótum í ár.

Damon Hill er afburða gítarleikari og lék í punksveit á árum áður.

Damon Hill er afburða gítarleikari og lék í punksveit á árum áður.

Hill segir að Schumacher þurfi að nota alla sína hæfileika og getu í keppni ætli hann sér hlutverk ökuþórs eftir árið í ár. „Hann verður að sanna að hann sé fljótari en liðsfélaginn. Auðvitað getur maður á borð við Michael lagt ógrynni af mörkum til liðs vegna reynslu sinnar. En á endanum snýst þetta allt um hvort þú ert sá besti í liðinu. Samkeppnin er ekki bara mikil við ökumenn annarra liða, heldur einnig innan liðs.“

Hill og Schumacher voru harðir keppinautar á sínum tíma.

Hill og Schumacher voru harðir keppinautar á sínum tíma.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is