D’Ambrosio og Bianchi varaökumenn
Belgíski ökumaðurinn Jérôme d’Ambrosio hefur verið ráðinn sem þriðji ökuþór Lotus-liðsins, áður Renault. Sömuleiðis hefur franski ökumaðurinn Jules Bianchi hlotið sama starf hjá Force India.
D’Ambrosio var nýliði í fyrra og keppti fyrir Virgin, sem ber nafnið Marussia í ár. En þrátt fyrir að hafa staðið sig betur en Timo Glock var hann látinn víkja fyrir franska ökumanninum Charles Pic. Starfar hann við hlið Kimi Räikkönen og Romain Grosjean hjá Lotus.
Jules Bianchi hefur verið á mála hjá Ferrari og var varamaður þar á bæ á nýliðinni keppnistíð. Hann er liðsmaður ökuþóraakademíu Ferrari og mun fá tækifæri hjá Force India til að aka á a.m.k. níu föstudagsæfingum keppnishelga.
Bianchi vann titil ökumanna í Evrópuröð formúlu-3 árið 2009 og vann mót í GP2 formúlunni í fyrra. Litið er á hann sem framtíðarmann hjá Ferrari.
Varaökumenn Force India undanfarin tvö ár hafa árið eftir hlotið hækkun í stöðu keppnisþórs. Forverar Bianchi í starfi eru Paul di Resta 2010 og Nico Hülkenberg í fyrra.









