Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 27.1.2012
| 20:03
| Uppfært
31.1.2012
8:01
Toro Rosso bauð Loeb að keppa
Sébastien Loeb, áttfaldur heimsmeistari í ralli í röð með Citroën, hefur greint frá því að Toro Rosso hafi boðið honum að keppa í lokamóti formúlu-1 í Abu Dhabi árið 2009. Áður hafði hann þegið boð um reynsluakstur hjá móðurliðinu, Red Bull.
Loeb afþakkaði beiðni Toro Rosso en liðið sóttist eftir því að fá hann til starfa í stað annars fransks ökumanns, Sébastien Bourdais, sem var látinn fara frá liðinu sakir ónógs árangurs.
„Tækifæri sem þetta bjóðast ekki á hverjum degi. Ég náði góðum brautartímum við reynsluaksturinn hjá Red Bull og hugmynd þeirra var að ég keppti í nokkrum mótum í formúlu-1. Á því var enginn möguleiki og ég hafði heldur sérstaka löngun til þess,“ segir Loeb sem á því stigi var fimmfaldur meistari í ralli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







