Räikkönen: Heimilislegast hjá Lotus
Kimi Räikkönen hefur aðlagast Lotusliðinu, áður Renault, hratt og vel en hann spreytti sig fyrir skömmu á tveggja ára gömlum keppnisbíl liðsins í Valencia á Spáni. Heimsmeistarinn frá 2007 hætti keppni í vertíðarlok 2009 en er snúinn aftur.
Tilgangur reynsluaksturs Räikkönen var að öðlast fljótt aftur tilfinningu fyrir formúlubíl eftir tveggja ára keppni í ralli. Tók hann alls konar æfingar, bæði með fullum bensíntak og mjög lítilli eldsneytisfyllingu. Æfði einnig dekkjastopp og var ánægður við verklok.
„Ég bjóst við að ná meiri hraða en raunin varð. Valencia er vissulega ekki með hröðustu brautum en þetta var allt í lagi,“ sagði hann við íþróttamenn breska sjónvarpsins, BBC. Sinn þátt í að hafa ekki fundið mikla hraðatilfinningu eiga dekkin sem undir bílnum voru, en Räikkönen gat samkvæmt reglum ekki brúkað keppnisdekk við aksturinn.
Räikkönen sagðist afar ánægður hjá Lotus og hrósaði mannskapnum. Hefur hann samanburð frá fyrri tíð því hann hefur keppt með Sauber, McLaren og Ferrari.
„Liðið hefur allt til að bera til að smíða góðan bíl. Það vantar ekkert. Mannskapurinn er áfram um að eiga gott ár og andinn innan liðsins er frábær. Þetta er miklu fjölskyldulegra en hjá hinum toppliðunum. Mjög vingjarnlegir náungar sem ég starfa með,“ segir hann.








