Prost enn sigursæll
Alain Prost, fjórfaldur fyrrverandi heimsmeistari í formúlu-1, er enn að og sigursælni hans dvínar vart þótt tæplega sextugur sé. Hrósaði hann sigri í ískappakstursröðinn Trophée Andros í Frakklandi um nýliðna helgi.
Fyrir lokamótið, sem fram fór í Super Besse, eigi fjarri Clermont-Ferrand, stóðu leikar þannig að Prost var jafn að stigum við undramann vetrarins, Benjamin Rivière, sem keppir á Skoda Fabia fyrir einkalið en ekki verksmiðju.
Hefur Rivière skotið öllum ökumönnum verksmiðjuliðs Skoda ref fyrir rass og er þar þó ekki um neina aukvisa að ræða, heldur Olivier Panis, Jacques Villeneuve, Franck Lagorce og Paul Belmondo. Hinir tveir fyrstnefndu voru á sínum tíma afreksmenn í formúlu-1.
Prost ók fyrir Dacialiðið sem teflt hefur fram þremur bílum í mótaröðinni, öðrum þeirra ók sonur Prost, Nicolas, og hinum Evens Stievenart.
„Ég átti engra annarra kosta völ en sigra í dag,“ sagði Prost eftir lokamótið. „Ég hafði góða tilfinningu fyrir bílnum og góð vinna aðstoðarmannanna skóp góðan árangur í tímatökunum. Við höfðum ekki efni á neinum mistökum og kláruðum dæmið mjög vel.“
Að endingu var Prost með fimm stigum fleira en Rivière í keppni ökumanna en aðeins stigi á eftir honum var efnilegur Frakki, Jean-Philippe Dayraut, á Mini Countryman. Olivier Panis varð fjórði í heildina og Villeneuve sjötti.
Þetta er þriðja sinni sem Prost vinnur Trophée Andros titilinn. Það gerði hann einnig sem ökumaður Toyota 2007 og 2008.









