Sutil fær 18 mánaða fangelsisdóm
Adrian Sutil, ökuþór Force India undanfarin ár, var dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag fyrir líkamsárás á næturklúbbi í Kína í fyrra. Jafnframt var hann sektaður um 200.000 evrur.
Fórnarlamb Sutils var Eric Lux, aðaleigandi Lotusliðsins, áður Renault. Rak Sutil kampavínsglas í höfuð hans með þeim afleiðingum að það brotnaði. Þurfti fjölda saumspora til að loka 9 sm löngum skurði sem myndaðist á hálsi Lux við höggið.
Málið var rekið fyrir dómstól í München í Þýskalandi. Sutil sagði á fyrri degi réttarhaldsins, í gær, að hann hefði margsinnis beðið Lux afsökunar og hafnaði því að það hafi verið ásetningur sinn að meiða hann. Ætlunin hafi einungis verið að skvetta úr glasinu framan í hann.
Saksækjendur kröfðust 21 árs fangelsis og 300.000 evru sektar og héldu því fram, að atvinnuíþróttamaður ætti ekki að hegða sér sem Sutil hafi gert. „Að stjaka manni frá sér með glasi er fífldirfska og ekki í samræmi við siðsamlegt hátterni. Atvinnuíþróttamenn eru fyrirmyndir í opinberu lífi og atvik sem þetta eiga ekki að eiga sér stað,“ sagði saksóknarinn Nicole Selzam.
Sektin sem Sutil var gert að greiða rennur til átta ótilgreindra líknarfélaga og fær hvert þeirra 25.000 evrur í sinn hlut.







