McLaren frumsýnir 2012-bílinn
„Þetta er fallegur bíll, ólíkt því sem mun koma í ljós hjá öðrum liðum,“ sagði Jenson Button er McLarenliðið frumsýndi nýja keppnisbíl sinn í bílsmiðjunni í Woking í Englandi í dag.
Bíll, McLaren, MP4-27, er afleiddur af keppnisbíl síðasta árs og ekki með því broti á trjónunni sem var að sjá á bíl Caterhamliðsins. Við frumsýningu þess bíls var því haldið fram að trjóna hans væri það sem koma skildi í ár, en McLaren hefur afsannað það.
Helstu útlitsbreytingarnar eru að L-laga hliðarbelgir heyra nú sögunni til að þeir nýju eru öllu hefðbundnari hönnun. Þá er trjónan lægri í samræmi við nýjar reglur.
Ennfremur er afturendi bílsins allur mun samanþjappaðri og mjórri en á bíl nýliðins árs. Bann við loftdreifum á neðanverðum afturendanum gerir það kleift.
„Við höfum verið að keyra þessum bíl í bílhermi í tæplega hálft ár og því er gott að sjá hann loks í raun og sann og í fullu veldi,“ sagði reynsluþórinn Gary Paffett. Starfsfélagi hans Oliver Turvey verður fyrstur til að aka bílnum er hann verður settur í gegnum beinlínuprófanir á flugbraut áður en formlegur reynsluakstur hefst í Jerez á Spáni í næstu viku.
McLaren er fyrsta stórlið formúlu-1 til að frumsýna 2012-bíl í ár. Button og Lewis Hamilton sviptu hann hulum við athöfnina í tæknimiðstöð liðsins. Formlega hefst reynsluakstur hans næstkomandi þriðjudag.






