Ferrari aflýsir frumsýningu
Ferrari hefur aflýst athöfn í bílsmiðju sinni í Maranello á Ítalíu þar sem ætlunin var að frumsýna 2012-bíl liðsins. Að henni lokinni stóð til að frumkeyra bílinn en hvoru tveggja hefur verið aflýst vegna fannfergis á svæðinu og áframhaldandi snjókomu.
Frumsýningarathöfnin átti að fara fram á morgun, föstudag. Í staðinn verða birtar myndir, myndbönd og tæknilegar lýsingar á bílnum á heimasíðu liðsins á morgun.
„Það kyngir niður snjó hérna í Maranello. Af þeim sökum hefur frumsýningarathöfninni á morgun verið aflýst,“ tilkynnti Ferrari á tísti sínu (Twitter) í morgun.
Í aðdraganda frumsýningarinnar ætluðu dvöldust ökumenn Ferrari í æfingabúðum á Lanzarote og byggðu upp kraft og úthald fyrir komandi keppnistíð. Æfðu þeir sig frá morgni til kvölds og á myndbandi sem er að finna hér má segja, að sjón sé sögu ríkari.






