Ætla sér í hóp fimm toppliða

Mynd 1 af 15
Brotið í trjónu 2012-bíls Force India er áberandi breyting frá því sem verið hefur. mbl.is/forceindiaf1

Liðsstjóri Force India, Bob Fernley, sagði er 2012-bíll liðsins var sviptur hulum í Sivlerstone í dag, að takmark þess væri að verða meðal fimm efstu liða á komandi formúluvertíð.

Fernley sagði að uppbyggingu liðsins væri lokið og gæti það því einbeitt öllum kröftum sínum í bílþróunina og keppni. Í fyrra var Force India í sjötta sæti í stigakeppni liða, aðeins fjórum stigum á eftir Renault, sem nú heitir Lotus.

Árangurinn í fyrra varð til að blása liðsmönnum kjark í brjóst og setja sér ný og æðri markmið fyrir árið í ár. Viðfangsefnið um þessar mundir væri því hvernig það verður að breyta til að geta keppt við fjögur til fimm öflugustu lið formúlunnar.

Liðið er að hefja fimmtu keppnistíðina undir merkjum Force India og dregur tegundarheiti bílsins, VJM05,  dám af því og eiganda liðsins, Vijay Mallya. „Keppnin verður hörð, það eru mörg lið sem verða þess megnug að slást um það sæti. Slagurinn  um það verður ekki síðri en baráttan um toppsætin.

Þetta er í fyrsta sinn um árabil sem nýr keppnisbíll Force India er klár til aksturs í fyrstu bílprófanalotu vetrarins. Áfram verður aflgjafinn vél frá Mercedes. Trjónu hans svipar til trjónu á bílum Caterham, áður Lotus, og Ferrari, með áberandi broti við fjöðrunarbúnað framhjólsins þar sem trjónan lækkar mjög.

Hliðarbelgirnir eru sömuleiðis mjög breyttir frá í fyrra en það er afleiðing nýrra reglna um útblásturskerfi keppnisbílanna.

Sú breyting hefur orðið á ökuþóraskipan liðsins, að Adrian Sutil hefur vikið sæti fyrir Nico Hülkenberg en Skotinn Paul di Resta er að hefja sitt annað keppnisár með liðinu. Þriðji ökumaðurinn, varamaður Hülkenbergs og Di Resta,  er franski ökumaðurinn Jules Bianchi sem er liðsmaður ökuþóraakademíu Ferrari.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is