Ferrari harmar ófagra hönnun

Mynd 1 af 6
2012-bíll Ferrari. mbl.is/ferrarif1

Ferrari kennir nýjum tæknireglum formúlunnar um að 2012-bíll liðsins er ekki sérdeilis fagur, en þar er mest áberandi og óaðlaðandi stallur á trjónunni. Af hálfu liðsins er sagt að bíllinn eigi eftir að taka breytingum við umfangsmiklan reynsluakstur á næstu vikum.

Ferrari hefur ætíð lagt upp úr fagurri bílhönnun og því segir Ferraristjórinn Luca di Montezemolo nýja bílinn ekki „veita mikla gleði“. Bíllinn hefur fengið tegundarheitið 663.

Þetta er 58. formúlubíllinn sem Ferrari smíðar en liðið hefur verið með í keppni í formúlu-1 frá upphafi vega, árið 1950. Fjöðrunarbúnaður hans að framan er alveg nýr frá í fyrra en liðið segir eftir sé að fínslípa hann við reynsluakstur á næstunni.

Framvængurinn er sömuleiðis afbrigði vængs sem prófaður var undir lok keppnistímabilsins í fyrra. Er hann sömu leiðis sagður eiga eftir að taka breytingum við frekari þróun.

Sömuleiðis er hönnun hliðarbelgjanna breytt og kæliristar í þeim eru staðsettar annars staðar en áður. Ennfremur eru kæliloftstrektar frambremsanna staðsettar öðruvísi og breyttar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is