Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 3.2.2012
| 9:11
Karthikeyan til Hispania
Ekkert sæti er lengur laust fyrir ökumann í formúlu-1 því spænska liðið Hispania hefur ráðið indverska ökuþórinn Narain Karthikeyan til að keppa við hlið Pedro de la Rosa. Fyrir sætið þurfti Karthikeyan að borga 5 milljónir evra, rúmar 800 milljónir króna.
Tilkynnt var um ráðninguna í morgun en Karthikeyan keppti fyrir Hispania fyrri helming síðasta árs en var síðan látinn víkja fyrir nýliðanum Daniel Ricciardo. Reyndar ók hann aftur undir lok vertíðar, eða í heimamóti sínu í Indlandi.
Hispania tekur þátt í fyrstu bílprófunum ársins í Jerez á Spáni í næstu viku. Þar mun De la Rosa sjá um aksturinn en Karthikeyan tekur þátt í annarri bílprófanalotunni, sem fram fer í Barcelona 21. til 24. febrúar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







