Alonso sýður af sjálfstrausti

Alonso og Massa ásamt Domenicali liðsstjóra við 2012-bíl Ferrari. stækka

Alonso og Massa ásamt Domenicali liðsstjóra við 2012-bíl Ferrari. reuters

Fernando Alonso er með sjóðandi sjálfstraust frammi fyrir nýrri keppnistíð í formúlu-1. Hann segist hafa fulla trú á að færni Ferrariliðsins geri honum kleift að keppa um heimsmeistaratitil ökumanna þegar í fyrsta móti.

Alonso er að hefja sitt þriðja keppnistímabil með Ferrari en litlu munaði að hann ynni titil ökumanna á því fyrsta, 2010. Og í fyrra varð hann að sætta sig við þriðja sætið eftir afar brösuga keppnistíð.

Hann vann aðeins eitt mót í fyrra, 2011, en kveðst sannfærður um að Ferrari hafi smíðað bíl fyrir komandi keppnistíð sem verði þess megnugur að fleyta honum til síns þriðja heimsmeistaratitils.

„Hann er mjög frábrugðinn bíl síðustu tveggja ára,“ sagði Alonso við afhjúpun F2012-bílsins. „Ég geng til leiks af sömu staðfestu sem fyrr og ákveðni, ég vil gera stóra hluti. Við viljum sjá rauðu bílana í pallsæti. Við byrjum reynsluakstur í næstu viku í Jerez og vinnum saman að því marki. Ég er viss um að við munum standa okkur vel í ár.“

2012-bíll Ferrari.

2012-bíll Ferrari. reuters

Alonso og Massa svipta hulunni af 2012-bíl Ferrari.

Alonso og Massa svipta hulunni af 2012-bíl Ferrari. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is