Ætla að endurvekja sigurandann
Lotusliðið, áður Renault, frumsýndi í dag 2012-bíl sinn sem kenndur er við bílsmiðju liðsins í Enston í Englandi og nefndur E20. Mun það vera tuttugasti bíllinn sem rennur úr smiðju þeirri. Liðið hefur sett sér sem markmið að verða a.m.k. í fjórða sæti í keppni bílsmiða í ár.
Annar aðaleigandi liðsins, Gerard Lopez, telur að fjórða sætið sé raunhæft takmark en það varð í fimmta sæti síðustu tvö ár undir merkjum Renault. Fyrir árið 2009 - er það féll niður í áttunda sæti - var það í einhverju af fjórum efstu sætunum sjö ár í röð. Hæst náði frammistaða Renault 2006 og 2006 er það hampaði bæði titlum bílsmiða og ökuþóra.
„Vonandi reynist bíllinn öflugur og ökumennirnir líka, vitaskuld er annar þeirra fyrrverandi heimsmeistari. Væntingar okkar standa til þess að bíllinn verði í fremstu röð á ný, reynum að hafa fjórða sætið í sigtinu en það ætti að vera raunhæft markmið,“ segir Lopez.
E20-bíllinn er eins að útliti og Renaultinn í fyrra, í svörtum lit og gylltum, þ.e. sömu litum og þáverandi Lotuslið brúkaði á áttunda og níunda áratug liðinnar aldar. Kimi Räikkönen er mættur aftur til leiks eftir tveggja ára fjarveru og verður aðalökumaður Lotus í ár. Hann varð heimsmeistari ökuþóra í formúlu-1 árið 2007.
Við hlið hans ekur franski ökuþórinn Romain Grosjean sem varð heimsmeistari í GP2-formúlunni í fyrra. Varamaður þeirra er belginn Jerome D'Ambrosio sem keppti fyrir Virgin í fyrra.
Liðsstjórinn Eric Boullier sagði við frumsýninguna í dag, að forgangsverk væri að endurvekja siguranda í bílsmiðjunni í Enstone. Þar hefur áður verið fagnað heimsmeistaratitlum Benetton og síðar Renault, síðast árið 2006 er Fernando Alonso vann titil ökuþóra.






