Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 5.2.2012
| 17:51
| Uppfært
8.2.2012
7:08
„Þeir kunna að smíða góðan bíl“
Kimi Räikkönen kveðst þeirrar skoðunar að Lotusliðið sé þess megnugt að smíða bíl sem keppt getur til sigurs, en liðið frumsýndi í dag 2012-bíl sinn.
Räikkönen varð heimsmeistari ökuþóra með Ferrari árið 2007 og snýr nú aftur til keppni eftir tveggja ára þátttöku í HM í ralli.
Lotus - þá undir merkjum Renault - vann sinn síðasta kappakstur 2008 með Fernando Alonso undir stýri. Í millitíðinni hefur liðið átt örðugt með að blanda sér í keppni þeirra bestu.
Räikkönen er því að þessu sé hægt að snúa við. „Mér sýnist þessi mannskapur fær um að smíða góðan bíl. Þeir eru mjög flinkir, hafa þetta í fingrunum og leggja hart að sér. Jafnvel bestu lið geta ekki smíðað sigurbíl hvert einasta ár. Vonandi skilum við góðum árangri í ár,“ segir hann.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







