Allt nýtt hjá Toro Rosso

Mynd 1 af 5
Ricciardo (t.v.) og Vergne afhjúpa 2012-bíl Toro Rosso í Jerez. mbl.is/tororossof1

Toro Rosso sýndi 2012-bíl sinn í dag í fyrsta sinn og eins og bílar margra annarra liða er hann með stallatrjónu. Báðir ökumenn liðsins í ár eru nýir.

STR7-bíllinn verður knúinn Ferrarimótor sjötta árið í röð en ökumenn hans verða franski nýliðinn Jean-Eric Vergne og ástralski ökuþórinn Daniel Ricciardo sem keppti hluta síðustu vertíðar fyrir Hispania.

Í fyrra varð Toro Rosso framar en nokkru sinni í keppni bílsmiða, eða í áttunda sæti. Þá óku Jaime Alguersuari og Sebastien Buemi fyrir liðið. Sá fyrrverandi keppir ekki í ár en Buemi er þriðji ökuþór Red Bull.

STR7 er þriðji bíllinn sem er að öllu leyti hannaður, smíðaður og samsettur í bílsmiðju liðsins í Faenza á Ítalíu. „Honum verður frumekið á morgun og eins og ætíð er það sérstök stund. Við erum með tvo nýja og hæfileikaríka ökumenn og ég er sannfærður um að báðir munu þeir standa sig vel,“ sagði liðsstjórinn Franz Tost við frumsýninguna í Jerez á Spáni í dag.

Hann bætti við að takmark liðsins væri að gera betur en í fyrra; verða annað hvort í sjöunda sæti í keppni bílsmiða eða ofar.

Um frumakstur bílsins á morgun mun Ricciardo sjá.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is