Sauber með óbreytt lið
Sauberliðið frumsýndi 2012-bíl sinn í Jerez á Spáni í morgun en hann er sem fyrr knúinn Ferrarimótor. Ökuþórar verða þeir sömu og í fyrra, Kamui Kobayashi og Sergio Perez.
Sauber varð í sjöunda sæti í keppni bílsmiða í fyrra eftir tvísýna keppni undir lokin við Toro Rosso. Liðið byrjaði vel, dalaði síðan, en reis upp á ný undir lokvertíðar.
„Takmarkið í ár er að vera reglulega í stigasæti og gera mun betur en íæ fyrra,“ sagði liðsstjórinn Peter Sauber við frumsýninguna.
C31-bíllin svipar til keppnisbíla sem þegar hafa verið sýndir að því leyti að trjónan leggst niður með brotstalli við framfjöðrunina. Að öðru leyti er hann að miklu leyti sagður vera áframþróun á keppnisbíl síðasta árs. Í honum séu þó nokkrar nýjungar og það róttækar, m.a. er á nýja Saubernum alveg ný afturfjöðrun.
Við frumsýninguna sagðist Kamui Kobayashi álíta að það mynda spila með Saubermönnum að bannað var eftir síðustu vertíð að leiða útblástur bílanna undir þá og um loftdreifinn svonefnda til að bæta vængpressu þeirra.






