Fersk byrjun hjá Williams
Sir Frank Williams segir í tilefni frumsýningar keppnisbílsins fyrir komandi vertíð tákni um flest nýja byrjun hjá liði hans. Tæknisveitin hafi verið stokkuð stórlega upp, ökuþórarnir séu með ferskara móti og ný vél mun knýja bílana; Renaultvélar sem á sínum tíma færðu Williams marga heimsmeistaratitla.
Tæknideild Williams hefur verið umbylt í kjölfar brottfarar tæknistjórans Sam Michael og Patricks Head. Nýr yfirmaður er Mike Coughlan fyrrverandi yfirhönnuður McLaren. Hefur hann við hönnun og smíði 2012-bílsins aðeins notað 5% þeirra íhluta sem var að finna í bílnum frá í fyrra sem var misheppnaðasta vertíð í sögu liðsins.
Pastor Maldonado og Bruno Senna munu aka fyrir Williams í ár en báðir eru frá Suður-Ameríku, Maldonado frá Venezúela en Senna frá Brasilíu.
„Þegar litið er til Williamsliðsins í dag má í raun og veru segja að við séum vi ðnýja og ferska byrjun. Nýr bíll, nýskipan ökuþóra, ný vél og nýir yfirmenn. Þá hefur fjöldi nýrra samstarfsfyrirtækja gengið til liðs við okkur á síðustu mánuðum. Það vona ég að báðir aðilar eigi eftir að njóta samstarfsins og hafa gagn af því. Veturinn í bílsmiðjunni hefur verið góður og við erum klárir í mikinn slag,“ sagði Sir Frank við frumsýningu bílsins.
Senna kemur í stað landa síns Rubens Barrichello og sest í sæti sem móðurbróðir hans sat í fyrrum; hinn sigursæli og annálaði Ayrton Senna.
Uppfært:
Alls kyns tanntökuverkir hrjáðu Williamsliðið á fyrsta degi bílprófana í Jerez á Spáni í dag. Í framhaldi af frumsýningunni í morgun tókst Pastor Maldonado einungis að aka FW34-bílnum 25 hringi.






