Alguersuari taldi sig öruggan

Jaime Alguersuari segir framtíðina lofa góðu. stækka

Jaime Alguersuari segir framtíðina lofa góðu. mbl.is/tororossof1

Forsvarsmenn Toro Rosso gengu á bak orða sinna og viku Jaime Alguersuari úr starfi mánuði eftir að hafa sagt sæti hans í liðinu öruggt árið 2012.

Alguersuari segist hafa hafnað boði frá öðru liði þar sem hann taldi sig öruggan hjá Toro Rosso. Liðið losaði sig ekki aðeins við hann, heldur Sebastien Buemi líka og réði Daniel Ricciardo og Jean-Eric Vergne í stað þeirra fyrir komandi vertíð.

Alguersuari stendur á því fastar en fótum að hafa verið búinn að fá tryggingu fyrir áframhaldandi veru hjá liðinu. „Þeir gáfu mér munnlega staðfestingu í lokamótinu í Brasilíu. Af þeim sökum hafnaði ég mjög góðu tilboði,“ segir hann.

Alguersuari ræðir við tæknimann í bílskúr Toro Rosso í Sao Paulo.

Alguersuari ræðir við tæknimann í bílskúr Toro Rosso í Sao Paulo. mbl.is/tororossof1

„Þegar Red Bull Racing tjáði mér 13. desember að ég væri ekki lengur í fjölskyldunni fannst mér ég ekki vera fórnarlamb og þetta var ekki dramatískt. En það verð ég að segja, að þeir særðu mig. Auk þess var þetta óþarfi,“ segir spænski ökuþórinn einnig.

„Ég mun aldrei borga fyrir keppnissæti. Í janúar átti ég viðræður við eitt af toppliðunum sem gætu átt eftir að leiða til straumhvarfa í framtíðinni. Þar var mér tekið hlýlega, þeir virða mig mikils og við höfum opnað hurðir milli okkar. Vitaskuld get ég ekki sagt hvað þar er um að ræða. Eina sem ég vil segja er að ég helga mig formúlunni einvörðungu. Skylda mín er að vera tilbúinn ef tækifæri opnast,“ segir Alguersuari.

Alguersuari með aðstoðarmanni í Sao Paulo.

Alguersuari með aðstoðarmanni í Sao Paulo. mbl.is/tororossof1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is