Bíll McLaren úr plasti
McLaren sýndi ekki á öll spilin er það frumsýndi 2012-bíl sinn í síðustu viku. Liðsstjórinn Martin Whitmarsh játar, að plathlutir hafi verið á bílnum úr plasti svo keppinautarnir nái ekki að afla fullra gagna um bílinn við fyrstu sýn.
Þannig var loftdreifir undir afturenda bílsins plat og útgöt útblásturskerfisins úr plasti, að sögn Whitmarsh.
Athygli einstakra liða mun beinast að því hvernig keppinautarnir hanni loftdreifa sína til að bæta sér upp vængpressu sem fór forgörðum við að bannað er nú að leiða útblástur vélarinnar í gegnum dreifinn.
„Pústútgangurinn var úr plasti, hann mun ekki sjást aftur í sömu útfærslu,“ segir Whitmarsh.
Við frumsýningu 2012-bíls Ferrari var pústkerfið falið með öllu en aftur á móti engin tilraun gerð til að fela framfjöðrunina sem byggist á stífum og stöngum sem ekki hafa sést í formúlu-1 í áratug.
„Stóru liðin hafa peninga til að leggja í svona hluti fyrir frumsýningarnar einvörðungu,“ kvartar framkvæmdastjóri Force India, Otmar Szafnauer. „Okkar bíll var mun nær lokagerð sinni en það sem kom fyrir sjónir hjá McLaren og Ferrari."
Ekki munu toppliðin tvö komast hjá því að vera með alvöru íhluti í þessari viku er þau verða við þróunarakstur í Jerez á Spáni. Það játar Whitmarsh. „Bíllinn verður nokkuð öðru vísi í Jerez en í síðustu viku og mun síðan verða enn annars útlits í fyrsta móti, í Ástralíu.
Ferrarihönnuðurinn Nikolas Tombazis staðfestir, að pústkerfið og útgangur þess verði það sem hönnuðir beini sjónum sínum einna mest að í ár. „Það verður unnið heilmikið í þeim þætti uns lokamynd kemst á útblástursbúnaðinn,“ hefur ítalskt dagblað eftir honum.






