Leynifrumsýning hjá Red Bull
Ökuþórar og forsvarsmenn Red Bull voru með hýrri há er þeir frumsýndu 2012-bíl sinn. Það var þó hálfgerður feluleikur því aðeins voru birtar þrjár grafískar myndir af bílnum á heimasíðu liðsins og stuttaralegt myndband.
Falist gátu Red Bull menn ekki lengi því bíllinn kom öllum fyrir sjónir er formúluliðin hófu reynslu- og þróunarakstur í Jerez á Spáni í gær. Forsvarsmenn liðsins sögðust vænta meiri framfara hjá sér á kappakstursbrautinni í ár þrátt fyrir að hafa ráðið lögum og lofum í fyrra og drottnað vertíðina 2011 út í gegn.
RB8-bíllinn þarf að heppnast vel til að standa 2011-bílnum á sporði. Á honum óku Sebastian Vettel og Mark Webber til 18 ráspóla, 12 sigra og 26 pallsæta. Tíu sinnum áttu þeir hraðast hring í móti. Loks höfðu þeir forystu í 798 hringjum af 1133 sem eknir voru í keppni í fyrra.
Liðsmenn munu ekki liggja í makindum og strjúka kvið í tilefni velgengninnar í fyrra heldur segir liðsstjórinn Christian Horner, að þeir muni reyna gera enn betur á komandi keppnistíð.
„Markmiðin eru mjög einföld; að verja báða heimsmeistaratitlana með svipuðum hætti og við unnum þá. Þegar uppskeran er eins og við höfum landað, einkum í fyrra, þá setja menn sér enn hærri mörk. Við munum reyna að bæta okkur og reyna gera betur á öllum sviðum,“ segir Horner.
„Við getum ekki haft áhrif á það sem keppinautarnir gera, þeir eru margir góðir. Við getum aðeins einbeitt okkur að okkar eigin verkefni og sjáum fyrst hver raunveruleikinn verður og hvar við stöndum gagnvart keppinautunum þegar kemur að fyrsta móti, í Melbourne,“ bætir hann við.






