Massa: Mikil vinna fyrir stafni

Massa var dúðaður í svalanum í Jerez. stækka

Massa var dúðaður í svalanum í Jerez. ap

Felipe Massa sagði eftir æfingar í gær og dag í Jerez á Spáni, að Ferrari ætti mikla vinnu fyrir höndum við að þróa og betrumbæta 2012-bíl sinn. Ósvarað er þeirri spurningu hvort Ferrari hafi með bílnum tekið það framfaraskref frá í fyrra sem það vænti.

Fulltrúar bæði Red Bull og McLaren hafa talað digurbarkalega um bíla sína en hjá Ferrari hafa menn lítið vilja ræða getu nýja bílsins. Massa játti því hins vegar í dag að langur vegur væri fyrir höndum í þróunarstarfinu.

„Í raun bíður okkar heilmikil vinna. Þessi bíll er nýr frá grunni en ekki sá bíll sem við vorum með í fyrra - og ekki einu sinni jafn góður og hann var í byrjun. Við þurfum að vinna mikið í honum og prófa heilmikið,“ sagði Massa.

Það er eins og Massa sé með sjónpípu á Ferrarinum í Jerez.

Það er eins og Massa sé með sjónpípu á Ferrarinum í Jerez. ap

Hann sagðist hafa prófað ýmsa íhluti í dag og uppsetningar og margt smátt sem liðið þurfti að átta sig á og skilja. Gagnaöflun sé mikilvæg í því sambandi. Aðspurður sagði hann að ýmislegt óvænt hefði komið upp, eins og alltaf mætti búast við þegar nýir bílar ættu í hlut.

„Árangurinn er ekki alltaf sá sem maður vonar eða reiknar með. Þetta er upphafið að mikilli vinni sem við þurfum að leggjast í til að móta stöðugan og samkeppnisfæran bíl,“ sagði Massa. Í grunninn byggðist hann á allt öðrum grunni en fyrri bílar og því bíði  ákafar bílprófanir þeirra Fernando Alonso á næstu vikum.

Massa á ferð í Jerez.

Massa á ferð í Jerez. ap

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is