Schumacher fljótastur
Michael Schumacher setti besta brautartímann í Jerez í dag, á öðrum bílprófanadegi formúluliðanna. Ók hann bíl frá í fyrra en hraðast á 2012-bílum fór Mark Webber hjá Red Bull.
Tilgangurinn með æfingum Schumacher er fyrst og fremst að afla sem mestra gagna um virkni nýju Pirellidekkjanna. Setti hann besta tíma dagsins fyrir hádegi og komst enginn í tæri við þann hringtíma það sem eftir lifði dagsins.
Sömuleiðis setti Webber sinn besta tíma fyrir hádegi en ökuþórarnir einbeittu sér flestir að löngum aksturslotum eftir hádegi en við slíkar æfingar verður hraðinn minni en í örstuttum lotum.
Tími Webbers í dag er sá besti sem nokkur 2012-bíll hefur sett á fyrstu tveimur dögunum. Var hann tæpri hálfri sekúndu fljótari með hringinn en Kimi Räikkönen hjá Lotus sem setti besta tímann í gær.
Þriðji fljótasti í dag varð svo landi Webbers, Daniel Ricciardo, á Toro Rosso, en hann ók alls 100 vandræðalausa hringi í dag.
Franski nýliðinn Jules Bianchi hóf starf hjá Force India í dag og setti fjórða besta tímann, en þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í reynsluakstri formúlu-1 bíla. Eftir hádegi tók liðsfélagi hans Paul di Resta við bílnum.
Räikkönen flaug tvisvar út fyrir braut í dag með þeim afleiðingum að gera þurfti aðeins við bílinn af þeim sökum. Engu að síður náði hann 117 hringjum. Ferrari kannaði í dag straumfræði bíls Felipe Massa sem var talsvert frá tíma bestu manna, eins og í gær.
Jenson Button lét aldrei reyna á hvaða hreini hraði býr í McLarenbílnum og átti aðeins áttunda besta hring. Heikki Kovalainen hjá Caterham ók hægast þeirra sem voru á 2012-bíl en rakaði saman fleiri hringjum en nokkur annar er hann ók alls 139 slíka.
Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:
| Röð | Ökuþór | Bíll | Tími | Bil | Hri. |
|---|---|---|---|---|---|
| 1. | Michael Schumacher | Mercedes | 1:18.561 | 132 | |
| 2. | Mark Webber | Red Bull | 1:19.184 | +0.623 | 97 |
| 3. | Daniel Ricciardo | Toro Rosso | 1:19.587 | +1.026 | 100 |
| 4. | Jules Bianchi | Force India | 1:20.221 | +1.660 | 46 |
| 5. | Kimi Räikkönen | Lotus | 1:20.239 | +1.678 | 117 |
| 6. | Paul di Resta | Force India | 1:20.272 | +1.711 | 69 |
| 7. | Felipe Massa | Ferrari | 1:20.454 | +1.893 | 95 |
| 8. | Jenson Button | McLaren | 1:20.688 | +2.127 | 85 |
| 9. | Sergio Perez | Sauber | 1:20.711 | +2.150 | 68 |
| 10. | Pastor Maldonado | Williams | 1:21.197 | +2.636 | 97 |
| 11. | Heikki Kovalainen | Caterham | 1:21.518 | +2.957 | 139 |
| 12. | Pedro de la Rosa | HRT | 1:22.128 | +3.567 | 64 |






