FIA hvatt til að hætta við Barein

Óvenjuleg aðferð til að fylgjast með keppninni í Barein. stækka

Óvenjuleg aðferð til að fylgjast með keppninni í Barein. reuters

Hópur breskra stjórnmálamanna hefur hvatt Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) til að hætta við kappaksturinn í Barein vegna pólitískrar ólgu en átök hafa blossað þar upp að nýju.

Lýstu stjórnmálamennirnir - flestir þeirra fulltrúar í lávarðadeild þingsins - þessu viðhorfi sínu í opnu bréfi sem birtist í dag í breska blaðinu The Times. Þar segjast þeir hafa áhyggjur af þeirri ákvörðun forsvarsmanna formúlu-1 að efna til keppni í Barein í apríl.

Segja þeir stjórnmálakreppuna í Barein vera olíu á eld óstöðugleika á Persaflóasvæðinu. Þar skorti allan vilja af hálfu yfirvalda að stuðla að pólitískum sáttum og auknu lýðræði. Fylkingar beggja aðila - yfirvalda annars vegar og lýðræðissinna hins vegar - hafi grafið sér pólitískar skotgrafir. Hættan sé sú að öfgar nái yfirhöndinni og vinni gegn friðsamlegri lausn deilumála.

„Með tilliti til hins viðsjála ástands, daglegra mótmæla á götum úti og dauða óbreyttra borgara, þá teljum við ekki rétt fyrir formúlu-1 að snúa aftur til Barein,“ segja bréfritarar.

Hvorki FIA né alráðurinn Bernie Ecclestone hafa undanfarið sýnst hafa áhyggjur af ástandinu í Barein. Í janúar sagði Ecclestone að ólgan þar væri ekkert til að bera kvíðboga yfir.

„Allir tala heilmikið um þennan heimshluta en Barein er það land á svæðinu þar sem fæst vandamál er við að stríða,“ sagði hann í viðtali við blaðið Salzburger Nachrichten.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is