Rosberg fljótastur á gömlum Benz

Mynd 1 af 9
Rosberg í Jerez í dag. reuters

Nico Rosberg á ársgömlum Mercedes ók hraðast í dag, á þriðja degi bílprófana í Jerez á Spáni. Fljótastur á 2012-bíl var hins vegar Romain Grosjean á Lotus.

Í dag mættu til leiks Sebastian Vettel, Lewis Hamilton og Fernando Alonso sem kynntust í fyrsta sinn nýjum keppnisbílum sínum.

Grosjean var sömuleiðis að setjast í fyrsta sinn í Lotusinn - áður Renault - og þurfti lítinn tíma til að venjast honum. Áður en komið var hádegi hafði hann sett hraðasta hring 2012-bíls það sem af er vikunnar.

Hafði hann tæprar sekúndu forskot á næstu menn og var Rosberg sá eini sem bætti um betur.

Hópur spænskra aðdáenda landa þeirra, Alonso, flykktust í stúkurnar í Jerez. Þeir höfðu  ekki mikið til að klappa fyrir því Alonso setti aðeins sjöunda besta tímann á Ferrarifák sínum.

Bruno Senna hjá Williams ók lengra en nokkur annar, eða 125 hringi. Franski nýliðinn Jean-Eric Vergne tók við akstri hjá Toro Rosso og setti fimmta besta tímann. Landi hans Jules Bianchi hjá Force India missti bílinn út úr brautinni áður en hann hafði ekið fullan tímahring. Tókst ekki að gera við bílinn í tæka tíð svo Nico Hülkenberg gæti æft sig síðdegis. Verður hann að bíða með það til morguns.

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Bil Hri.
1. Rosberg Mercedes 1:17.613 118
2. Grosjean Lotus 1:18.419 +0.806 117
3. Vettel Red Bull 1:19.297 +1.684 96
4. Hamilton McLaren 1:19.464 +1.851 80
5. Vergne Toro Rosso 1:19.734 +2.121 79
6. Perez Sauber 1:19.770 +2.157 48
7. Alonso Ferrari 1:20.412 +2.799 67
8. Senna Williams 1:21.293 +3.680 125
9. Van der Garde Caterham 1:23.324 +5.711 74
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is