Webber lofar 2012-bíl Red Bull
Eftir að hafa ekið 2012-bíl Red Bull í tvo daga í Jerez segist Mark Webber á því að bíllinn verði samkeppnisfær á komandi keppnistíð.
En þrátt fyrir bjartsýni sína varar hann við því að Ferrari, McLaren og Mercedes muni öll verða öflug og því verði lið hans að byggja ofan á góða byrjun bílprófana til að verða ekki undir.
Á seinni deginum setti Webber besta tíma 2012-bíla. „Hann var mjög samkeppnisfær við vetrarprófanir í fyrra og hið sama er að gerast nú. Við vitum að Ferrari og McLaren verða í toppslagnum og við höfum enn ekki séð til Mercedes.
Okkur finnst við vera vel undirbúnir til að gera vel en við verðum að halda áfram að bæta okkur. Það er enn langt í fyrsta mót og getum ekki farið að hlakka strax til þess. Við getum okkur til hvað bíllinn getur en menn eru samt alltaf kvíðnir og stressaðir á þessum árstíma,“ segir Webber.
Hann sagði að tíma tæki að læra á bílinn og ná tökum á honum vegna hinna afdrifaríku breytinga sem orðið hafa á tæknireglum keppnisbílanna.







