Alonso kom Ferrari á toppinn

Mynd 1 af 6
Ferrari hefur verið í skugganum af öðrum liðum í Jerez þar til í dag. reuters

Fernando Alonso fékk aðstoðarmenn sína í bílskúr Ferrari í Jerez til að brosa á ný er hann setti í dag besta brautartímann á fjórða og síðasta degi æfingalotunnar. Hafði ekkert kveðið að Ferrari síðustu þrjá daga.

Liðsmenn Ferrari áttu í erfiðleikum að ná yfirhöndinni á bílnum til þessa og játaði til dæmis  tæknistjórinn Pat Fry í gær að hann „væri ekki ánægður með stöðuna.“ En Alonso létti lund sinna manna í dag er hann setti næstbesta tíma 2012-bíls alla æfingadagana fjögurra, á fyrsta hring í sex hringja aksturslotu.

Og þótt hraði Alonso sé fremur afleiðing af því að lítið eldsneyti hafi verið í tanki en að liðið hafi leyst einhverja ráðgátu í bílnum er engu að síður um framför að ræða. Ekki síst þar sem besti hringur bílsins er aðeins fjórum tíundu úr sekúndu frá besta tíma vikunnar. Eftir hádegið gat Alonso frekar lítið ekið vegna vökvakerfisbilunar.

Meðan sólin skein við Ferrari stakk fjarvera bíls Red Bull í stúf. Sebastian Vettel gat einungis ekið tvo hringi í morgun áður en rafkerfisbilun kom í veg fyrir að hann æki meira en tvo úthringi. Komst hann ekki aftur  í brautina fyrr en eftir hádegi.

Engin vandræði af þessu tagi háðu systurliðinu Toro Rosso en franski nýliðinn Jean-Eric Vergne setti næstbesta tíma dagsins og var aðeins sjö tíundu úr sekúndu lengur með hringinn en Alonso.

Lewis Hamilton hjá McLaren setti fjórða besta tímann en var ögn lengur með sinn besta hring í dag en í gær.

Romain Grosjean hélt árfam góðum dampi hjá Lotusliðinu. Nico Hulkenberg gat loks ekið 2012-bíl Force India eftir að gert hafði verið við hann í framhaldi af árekstri í gærmorgun. Sömuleiðis ók Jarno Trulli bíl Caterham í fyrsta skipti í dag.

Bruno Senna hjá Williams ók manna mest eða 117 hringi, þar af í einni 25 hringja lotu og annarri upp á 37 hringi. Rétt fyrir hádegi þurfti hann  að nema staðar vegna smávægilegrar bilunar og leggja bílnum. Átti það sér stað í beygju sem kennd er við móðurbróður hans, Ayrton Senna. 

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Bil Hri.
1. Alonso Ferrari 1:18.877 39
2. Vergne Toro Rosso 1:19.597 +0.720 80
3. Vettel Red Bull 1:19.606 +0.729 50
4. Hamilton McLaren 1:19.640 +0.763 86
5. Grosjean Lotus 1:19.729 +0.852 95
6. Kobayashi Sauber 1:19.834 +0.957 76
7. Hulkenberg Force India 1:19.977 +1.100 90
8. Senna Williams 1:20.132 +1.255 125
9. Trulli Caterham 1:22.198 +3.321 117
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is