Grosjean eldhress með Lotusinn

Mynd 1 af 5
Grosjean á ferð í Jerez. mbl.is/lotusf1

Romain Grosjean er eldhress með árangur sinn og útkomu 2012-bíls Lotus í fyrstu reynsluaksturslotu ársins í Jerez á Spáni. Ók hann hraðast allra nýju bílanna á fyrsta degi sem hann sat undir stýri nýja bílsins.

Setti Grosjean meðal annars betri brautartíma en heimsmeistarinn Sebastian Vettel á  Red Bull. Vildi franski ökumaðurinn þó lítið gera úr því en sagðist ánægður með meðfærileika nýja Lotusins, sem áður bar nafn Renault.

„Vissulega er betra að vera fyrstur en síðastur, það er kýrljóst,“ sagði Grosjean. „En aðal atriðið er þó að bíllinn er býsna góður. Hann lætur vel í akstri og við erum að reyna bæta hann sem mest alla leið fram í tímatökurnar í fyrsta móti, í Melbourne.“

Grosjean segir að meðhöndlun bílsins sé í fullu samræmi við þess sem búist var við eftir prófanir í tölvulíkönum og bílhermi. Það efli sjálfstraustið og geri honum kleift að knýja hann til hins ítrasta. „Maður getur virkilega treyst á hann sem er forsenda þess að keyra í botni og hann lætur vel að stjórn í hröðum beygjum. Þess er þörf í formúlu-1 og beri menn ekki traust til bílsins ná þeir ekki út úr honum sekúndubrotunum sem máli geta skipt,“ segir hann.


 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is