Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 10.2.2012
| 9:52
| Uppfært
11:38
McLaren trúir á trjónuna
McLarenliðið er á því að það hafi engin mistök gert í hönnun trjónu bílsins. Er það eiginlega nákvæmlega eins og áður en öll önnur lið hafa farið aðra leið og eru með stall á trjónunni.
McLaren er þetta kleift þar sem undirvagn bílsins er - eins og undanfarin ár - lægri en annarra liða. Er það hönnunarspeki sem liðið hefur beitt um nokkurra ára skeið. Með því hefur það komist hjá því að stalla trjónuna.
En spurningar hafa vaknað um hvort þetta sé rétt stefna hjá McLaren þar sem það er hið eina sem kosið hefur þessa leið. Tæknistjórinn Paddy Lowe segir ekkert að óttast, liðið hafi grannskoðað hinn kostinn og niðurstaðan verið sú að sú leið sem fyrir valinu varð hafi verið betri þegar á heildina væri litið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







