Ferrarifákur undir væntingum
Tæknistjóri Ferrari, Pat Fry, viðurkennir að 2012-bíllinn hafi ekki skilað þvíæ sem vænst var af honum við bílprófanir í Jerez á Spáni. Hann kveðst samt þeirrar trúar að liðinu takist að leysa vandamálin svo bíllinn verði klár í toppslaginn í fyrsta móti.
Þetta sagði Fry eftir þrjá fyrstu bílprófanadagana og bætti við að liðið væri ekki sátt við framvinduna. Eitthvað hefur Fernando Alonso þó létt áhyggjur með því að setja besta brautartíma vikunnar á lokadegi æfinganna.
„Ég er ekki sáttur hvar við stöndum,“ sagði Fry við breska akstursíþróttaritið Autosport. „Við getum held ég bætt okkur talsvert. Endingin er góð og getan þokkaleg en við getum bætt hana á nokkrum sviðum. Ég verð ekki ánægður fyrr en allur pakkinn virkar vel.“
Áhyggjum sínum lýsa Ferrarimenn á sama tíma og keppinautarnir hjá McLaren og Red Bull lýsa báðir ánægju með fyrstu spretti sinna bíla. Gefur Fry til kynna, að Ferrari hafi ekki ennþá dottið niður á hina ákjósanlegustu uppsetningu bílsins sem er mun róttækari í allri hönnun en keppnisbíll síðasta árs.








