Bíl Hispania seinkar

De la Rosa á ferð á 2011-bíl Hispania við reynsluakstur í Jerez. stækka

De la Rosa á ferð á 2011-bíl Hispania við reynsluakstur í Jerez. mbl.is/hispaniaf1

Dragast mun fram í síðustu bílprófanalotu vetrarins að Hispania geti tekið 2012-bíl sinn í notkun. Smíði bílsins tefst þar sem hann hefur fallið á tvennum árekstrar- og höggprófum.

Hispania hafði áformað að mæta með bílinn í æfingalotu sem hefst í þarnæstu viku í Barcelona en nú er útséð um það. Ætlar liðið að taka sér meiri tíma í að bæta bílinn og fínslípa í verksmiðju sinni.

Af 17 skylduprófum hjá Alþj'oða akstursíþróttasambandinu (FIA) stóðs bíll Hispania 14 en féll á tveimur og eitt prófið gat hann ekki farið í gegnum. Mun aðeins hafa vantað lítilsháttar á að hann stæðis prófin öll. Veltigrindina þarf ögn að styrkja og sömuleiðis trjónuna. Undirvagninn flaug hins vegar í gegn með glans og mun lítið verk að bæta úr ágöllunum sem ollu því að bíllinn fékk ekki fulla skoðun.  

De la Rosa á ferð á 2011-bíl Hispania við reynsluakstur í vikunni í Jerez.

De la Rosa á ferð á 2011-bíl Hispania við reynsluakstur í vikunni í Jerez. mbl.is/hispaniaf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is