Renaultvélar sparneytnari
Vélasmiðja franska bílaframleiðandans Renault, Renault Sport F1, heldur því fram að nýi mótorinn sem hún leggur Lotus, Red Bull, Williams og Caterham sé skilvirkari en vélar annarra keppnisliða.
Jean François Caubet, forstjóri Renault Sport F1, segir að skjólstæðingar sínir muni hafa forskot á önnur lið hvað eldsneytisnotkun og akstursgetu varði.
Eftir að tekið var fyrir áfyllingar meðan á keppni stendur frá og með 2010 hafa mótorsmiðir keppt innbyrðis um smíði véla þar sem reynt hefur verið að finna sem besta jafnvægið milli bensínnotkunar og afkastagetu á brautinni.
Ekki hefur verið hægt að sjá mjög vel hvar línan milli of mikils eldsneytis eða of lítils hefur legið undanfarin tvö ár. Sérfræðingar liðanna hafa legið yfir þessu og nú staðhæfir Renault, að liðin sem vélasmiðjan leggur til mótora geti keppt með minna bensín í tönkunum en helstu keppinautarnir. Þar muni 15-18 lítrum Renault í hag. Í því felist mikill þyngdarsparnaður, sem ráðið geti úrslitum í bæði ræsingu og keppninni út í gegn.
„Vél Mercedes er um það bil 15 hestöflum kraftmeiri en okkar. Ferrarivélin er einnig öflugri en hvað akstursvirkni og sparneytni varðar þá stendur vél Renault þeim fremri,“ segir Jean François Caubet.






