Williams hefur ekið mest

Maldonado á ferð á Williams í Jerez. stækka

Maldonado á ferð á Williams í Jerez. mbl.is/williamsf1

Williamsliðið lagði fleiri hringi að baki en nokkurt annað lið við fyrstu bílprófanalotu ársins í Jerez á Spáni í síðustu viku. Fyrsti dagurinn gekk brösuglega vegna tannverkja en eftir það hélt ekkert aftur af Pastor Maldonado og Bruno Senna.

Alls óku þeir 372 hringi á fjórum dögum, þar af ók Senna 250 hringi. Næst iðnastir voru ökumenn Mercedes en þeir óku keppnisbíl frá í fyrra sem settur var upp með tilliti til nýrra tækniregla fyrir árið í ár.  Var honum aðeins ekið í þrjá daga af fjórum. Sömuleiðis ók Hispanialiðið í aðeins tvo daga.

Af stórliðunum varð McLaren í fjórða sæti í þessari upptalningu en aðeins munaði 48 hringjum á þriðja liðinu og því áttunda. Eftir mjög annasamar æfingar fyrstu tvo dagana féll Force India niður um fjölda sæta þar sem einn dagurinn fór alveg forgörðum vegna óhapps eftir aðeins tvo hringi.

Senna á ferð á Williamsbílnum í Jerez.

Senna á ferð á Williamsbílnum í Jerez. mbl.is/williamsf1

Annars var ekið sem hér segir á æfingunum í Jerez:

Röð Lið Hringir Km.
1. Williams 372 1647.2
2. Mercedes 348 1540.9
3. Toro Rosso 316 1399.3
4. McLaren 313 1385.9
5. Sauber 299 1323.9
6. Red Bull 297 1315.1
7. Lotus 287 1270.8
8. Ferrari 268 1186.7
9. Caterham 219 969.7
10. Force India 139 615.5
11. Hispania 108 478.2
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is