Ekki nógu góðir í sæti hjá Red Bull
Toro Rosso stjórinn Franz Tost segir að hæfileikar Jaime Alguersuari og Sebastien Buemi hafi einfaldlega ekki verið nógu miklir til að þeir kæmu til greina sem keppnisökumenn hjá Red Bull.
Á óvart kom er Alguersuari og Buemi vor báðir látnir sigla sinn sjó og Daniel Ricciardo og Jean-Eric Vergne valdir til að keppa í stað þeirra fyrir Toro Rosso í ár.
Tost hefur margsagt að tilgangur Toro Rosso sé sá að þróa og framleiða hæfileikaríka ökumenn sem passi síðar meir í keppnissæti hjá móðurliðinu, Red Bull. Og hann er á því að hvorugur þeirra Alguersuari og Buemi hafi haft styrkleika til þess, en þeir eiga báðir Red Bull að þakka að þeir hafi komist til keppni í formúlu-1.
„Það er hluti af sportinu að menn komi og fari, hér eru gerðar miklar kröfur. Báðir standa í þakkarskuld við Red Bull, án þess hefðu þeir aldrei komist að sem keppendur í formúlu-1.
Ég segi ekki að þeir passi ekki inn í formúlu-1 því báðir sýndu umtalsverða færni í nokkrum mótum. En það dugar ekki Red Bull. Ég get vel ímyndað mér að þeir gætu orðið toppmenn í einhverjum öðrum akstursíþróttum,“ segir Tost.






