Trulli látinn taka pokann
Í fyrsta sinn í 42 ár verður enginn ítalskur ökuþór á rásmarkinu er komandi keppnistíð formúlu-1 hefst í Melbourne í Ástralíu eftir tæpan mánuð. Jarno Trulli hefur verið vikið úr starfi hjá Caterhamliðinu.
Trulli hefur keppt fyrir liðið frá 2010 og var með fastan samning fyrir árið í ár en sýnt hefur sig oftar en ekki að lítið hald er í samningum ökumanna þegar liðsstjórar eru annars vegar. Trulli er gert að víkja fyrir Vitaly Petrov sem nýlega missti starfið hjá Lotus, áður Renault.
Trulli hóf keppni í formúlu-1 með Minardiliðinu árið 1997 og á því 15 keppnistíðir í röð og 256 mót að baki. Ferraristjórinn Stefano Domenicali sagðist í tilefni burthvarfs hans hryggur yfir því að enginn ítalskur ökuþór yrði meðal keppenda í ár.
Gamall keppinautur hans, Rubens Barrichello, sem einnig hverfur af vettvangi í ár eftir 20 ár í íþróttinni sagði örlög Trulli ömurleg. „Leitt að sjá að Trulli verður ekki á rásmarkinu í ár . . . Peningar ráða öllu núna,“ skrifar hann á Twittersíðu sína.
Það er einmitt ástæðan fyrir því að Caterham lætur hann víkja fyrir Petrov. Trulli var á launum hjá liðinu en Petrov er einn af vaxandi fjölda ökumanna sem borgar fyrir sæti með því að færa liði mikið styrktarfé. Rússneskir auðkýfingar styrkja hann til keppni.
Sjálfur sagði Trulli uppsögn sína ekki koma sér á óvart í því efnahagslega andrúmslofti sem formúluliðin búi nú. Sagðist hann vona að fjármunirnir sem Petrov kæmi með muni tryggja betur framtíð Caterhamliðsins.
„Ég er persónulega ekkert fúll; undir hugsanlegan skilnað við Caterham var ég búin, vitandi að hinar erfiðu efnahagslegu kringumstæður myndu knýja liðið til að finna ökumann með nógu mikið styrktarfé,“ sagði Trulli við ítölsku fréttastofuna Ansa.
„Litlu liðin hafa vissar þarfir og ég vona að með framlagi Petrovs verði framtíð allra starfsmanna liðsins talsvert bjartari,“ bætti hann við.







