Vissir um framför hjá Williams

Senna á 2012-bíl Williams við reynsluakstur í Jerez. stækka

Senna á 2012-bíl Williams við reynsluakstur í Jerez. mbl.is/lotusf1

Mark Gillan, aðalverkfræðingur Williamsliðsins, segist sannfærður um að keppnisbíll liðsins í ár verði miklu mun betri í mótum ársins en bíll liðsins frá í fyrra, sem lengstum var arfaslakur.

Keppnistíðin í fyrra var sú slakasta í sögu Williams. Hlaut það aðeins fimm stig í keppni og hafnaði í níunda sæti í keppninni um heimsmeistaratitil liðanna. Vonast liðsmenn til að snúa þessu til betri vegar í ár.

Gillan segir að 2012-bíllinn hafi reynst öflugur í fyrstu bílprófanalotu ársins, í Jerez á Spáni í síðustu viku, og mun aðsópsmeiri en bíllinn frá í fyrra. 

„Tvímælalaust er um framfarir að ræða. Þetta er allt annar bíll og það er margt sem við getum skoðað og leyst frekar úr læðingi til að bæta hann enn frekar. Það gátum við ekki gert í fyrra vegna þess hvernig sá bíll hegðaði sér í akstri og nýtti dekkin. Það er ljóst að það er mikill munur á bílunum tveimur og við munum nota næstu bílprófanir til að bæta hann og fínstilla uppsetningar,“ segir Gillan.

Hann hrósaði og vélinni sem liðið fær nú frá Renault, í fyrsta sinn í mörg ár. „Hún er mjög góð, mjög svaragóð og tilkomumikil.“

Loks lýst Gillian ánægju sinni með fyrstu starfsdaga Bruno Senna hjá liðinu en hann ók fleiri hringi en nokkur annar ökumaður í Jerez, eða 250. „Við vorum ánægðir með hversu jafn og stöðugur hann var. Vitaskuld er hann að læra á bílinn. Upplýsingar sem hann veitti tæknimönnum eftir aksturslotur voru frábærar, mjög nákvæmar.“


 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is