Á eftir að taka stakkaskiptum
Aðdáendur Lótusliðsins ættu ekki að leggja of mikla áherslu á að þekkja útlit keppnisbíls liðsins, að sögn tæknistjórans James Allison. Hann segir að bíllinn muni taka stakkaskiptum fram að fyrsta móti ársins, eftir tæpan mánuð.
E20-bíllinn, eins og Lótus nefnir hann, vakti mikla athygli við fyrstu bílprófanalotu ársins í Jerez á Spáni á dögunum. Ók hann hraðast allra bíla á fyrsta degi og aftur þeim þriðja, er hann ók hraðast 2012-bíla.
Í fyrra tilvikinu var Kimi Räikkönen undir stýri og Romain Grosjean í því seinna. Allison segir þó að þetta verði ekki Lótusinn sem verði á rásmarkinu í Melbourne í næsta mánuði.
„Hann verður áberandi öðruvísi en sá sem við keyrðum í Jerez,“ segir Allison á heimasíðu liðsins. „Við eigum eftir að vinna heilmikið í bílnum áður en keppnistíðin rennur upp. Og margir hlutar hans munu breytast. Framvængurinn, afturvængurinn, hliðarbelgirnir, útblástursrásirnar, vélarhúddið, vindskeiðar, botnplatan, hlutar fjöðrunarkerfisins, kælitrektir bremsukerfanna svo fátt eitt sé nefnt. Eins og ætíð verða næstu vikur annasamar,“ segir Allison.







