Áfram um að endurráða Schumacher
Það þarf alls ekki vera að komandi keppnistímabil verði hið síðasta af hálfu Michaels Schumacher. Hermt er að Daimler, móðurfélag Mercedes, sé áfram um að ráða Schumacher til að keppa mun lengur.
Gildandi ráðningarsamningur Schumacher gildir til næstu áramóta. Og þótt skortur hafi verið að stórárangri frá því hann sneri aftur til keppni 2010 hafa framfarir hins 43 ára gamla Schumacher þótt miklar og jafnt vaxandi undanfarin tvö ár.
Verði þróunin sama á komandi vertíð gæti svo farið að Schumacher framlengi samninga sína við Mercedesliðið. „Hann er enn goðsögn akstursíþróttanna,“ hefur þýska fréttastofan Dpa eftir forstjóra Daimler, Dieter Zetsche, af þessu tilefni.
Zetsche segir að það sé „aðlaðandi tækifæri“ að vinna áfram með Schumacher, sem kosti fyrirtækið „aðeins“ sjö milljónir evra á ári, eða jafnvirði tæplega 1,2 milljarðs króna.






