Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 20.2.2012
| 12:42
| Uppfært
17:03
Mercedes frumsýnir á þriðjudag
Mercedes frumsýnir 2012-bíl sinn í fyrramálið við upphaf bílprófana í Barcelona. Liðsstjórinn Norbert Haug segir að ekki þurfi menn að búast við að þar birtist einhverjar róttækar nýjungar.
Mercedes var við einkaæfingar í Barcelona í gær og lögðu þeir Michael Schumacher og Nico Rosberg að baki um 300 km, alveg áfallalaust.
Mercedes er eina stórliðið sem enn á eftir að frumsýna og eitt þriggja liða sem er í þeirri stöðu, hin eru botnliðin Hispania og Marussia.
Schumacher mun sjá um aksturinn í Barcelona á morgun og fimmtudag en Rosberg verður undir stýri miðvikudag og föstudag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






