Newey hannaði klókt pústkerfi
Adrian Newey, hönnuður formúlubíla Red Bull, hefur þróað „klóka“ leið til að endurheimta nokkuð af þeirri vængpressu sem tapaðist við að bannað var að leiða útblástur gegnum loftdreifir á afturenda bílanna.
Þessu heldur yfirmaður véladeildar Renault, Jean Francois Caubet, fram en vélasmiðjan og tæknideild Red Bull juku samstarf sitt við bílþróunina eftir að loftdreifabannið. Er það nú meira en nokkru sinni fyrr.
„Formúla-1 snýst um sköpun og þó svo reglunum hefur verið breytt höfum við unnið með Red Bull og fundið lausn sem bætir fyrir getutapið,“ segir Caubet við þýska akstursíþróttaritið Auto Bild.
Eftir fyrstu æfingavikuna í ár í Jerez á Spáni sögðu sérfróðir, að svo hefði litið út sem 2012-bíll Newey hefði verið á brautarteinum gegnum beygjur, svo jafn og stöðugur hafi hann verið.
„Það er vegna þess að við höfum allir verið að leika okkur með lestarmódel,“ grínaðist liðsstjórinn Dietrich Mateschitz við spurningu um þetta efni.






