Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 20.2.2012
| 20:24
| Uppfært
21.2.2012
7:30
Pérez sagður arftaki Massa
Sergio Pérez verður arftaki Felipe Massa hjá Ferrari á næsta ári, ef marka má frétt í spænska íþróttadagblaðinu As.
Pérez ekur fyrir Sauber í ár en Mexíkóinn er sagður í miklum metum hjá forsvarsmönnum Ferrari. Hann fékk að spreyta sig við bílprófanir hjá ítalska liðinu í fyrra. Og það er vél frá því sem sér hinum svissneska keppnisbíl Pérez fyrir afli.
Samningur Massa við Ferrari rennur út í vertíðarlok. Undanfarnar vikur, mánuði og misseri hafa margir ökumenn verið orðaðir við Ferrari sem arftakar hans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






