Játa falin leyndarmál í bílnum
Christian Horner liðsstjóri Red Bull hefur játað, að hann haldi spilunum þétt að brjósti í aðdraganda nýrrar keppnistíðar í þeim tilgangi að mótherjarnir uppgötvi ekki fyrr en í lengstu lög leyndarmál liðsins sem í hönnun keppnisbílsins felist.
Frumsýning 2012-bíls Red Bull gaf forsmekkinn því liðið hafnaði því að halda dæmigerða athöfn og leyfa fjölmiðlunum að skoða og mynda bílinn í bak og fyrir. Í staðinn var ein tölvugerð ljósmynd af bílnum birt á vef liðsins og stutt myndband.
„Við vildum ekki að keppinautarnir gætu myndað hann frá öllum hornum,“ játar Horner við akstursíþróttaritið Auto Motor und Sport. „Við frumsýningu fyrir ári voru 100 ljósmyndarar viðstaddir og skutu í gríð og erg, líka af þaki bílskúrsins. Á svipstundu höfðu allir hvert einasta mál bílsins.“
Á undanförnum tveimur árum hafa önnur lið stælt eftir uppgötvunum úr smiðju Adrians Newey hönnuðar Red Bull en hann skóp bílana sem færðu liðinu báða titla formúlunnar 2010 og 2011. Sjónir tæknimanna keppinautanna beinast enn að nýjum „brellum“ Newey undir bílgrindinni en liðið hefur ákveðið að gera þeim það ekki auðvelt.






