Sambandið við Schuma liðugt

Mynd 1 af 10
Schumacher og Rosberg við frumsýningu 2012-bíls Mercedes í Jerez í morgun. mbl.is/mercedesf1

Nico Rosberg segir við upphaf þriðja samstarfsárs þeirra Michaels Schumacher hjá Mercedes, að samband þeirra hafi verið liðugt og þeir standi jafnfætis innan liðsins.

Er Rosberg gekk til liðs við Mercedes í árslok 2009 stóð hann síðar óvænt frammi fyrir því að hafa mesta afreksmann formúlu-1 sem liðsfélaga. En það einkennilega gerðist, að Þjóðverjinn yngri hafði undirtökin og stóð meistaranum fyrrverandi framar að getu.

Hlaut Rosberg fleiri stig í keppni á fyrsta ári þeirra Schumacher hjá Mercedes og hið sama gerðist í fyrra þótt munurinn væri þá minni á þeim. Það rekur Rosberg aðallega til dekkja og breytinga er galopnuðu ökumönnum tækifæri til framúraksturs.

„Mikilvægi tímatökunnar minnkaði stórlega 2011 og það er helsta skýringin. En Michael var líka betri, geta hans var meiri en 2010. Í upphafi leit ég upp til hans en nú hefur leikurinn jafnast og samstarfið þjálar. Ég virði helgun hans gagnvart íþróttinni og aðkomu. Það er áhugavert að upplifa,“ segir Rosberg í bílatímaritinu Car.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is